Skip to content
HeyJared

Skuggavaldið

Í Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum.

Podcast · By skuggavaldid · English · Official site

Indexed episodes, last 90 days
6
Latest publication
Sep 14, 2026
Audience
Checking…
Earliest in this view
Jul 6, 2026

Latest episodes

  1. Episode · Sep 14, 2026

    #50 - Epstein og samsæriskenningarnar - seinni þáttur (opens the original)

    Episode notes

    Read excerpt

    Stytti Jeffrey Epstein sér aldur, eða var honum hjálpað við það? Í seinni þætti af tveimur um Epstein-málið ræða Hulda og Eiríkur hvernig frasinn „Epstein drap sig ekki“ varð að alþjóðlegri samsæriskenningu eftir að hann fannst látinn í fangaklefa sínum árið 2019. Fjallað er um njósnakenningar tengdar CIA, Mossad og Kreml, ný skjöl sem nýlega hafa komið í ljós, dularfull dauðsföll í Frakklandi og af hverju Epstein-málið heldur áfram að skaka stjórnmálin, sjö árum eftir andlát hans. Skuggavaldið

  2. Episode · Aug 31, 2026

    #49 - Epstein 1: Ris, fall og óútskýrð auðæfi (opens the original)

    Episode notes

    Read excerpt

    Jeffrey Epstein braut kynferðislega á fjölda stúlkna og ungra kvenna árum saman en naut á sama tíma verndar valdafólks og undarlega vægrar meðferðar réttarkerfisins. Hulda og Eiríkur rekja ævi hans, allt frá æskunni í verkamannahverfi í Brooklyn, til lúxulífs og loks fangaklefans þar sem hann dó. Fyrri þáttur af tveimur um þetta mál sem skekið hefur samfélagið og hefur ekki enn verið leitt að fullu til lykta. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghú

  3. Episode · Aug 17, 2026

    #48 - Evrópusambandið og sögurnar um það (opens the original)

    Episode notes

    Read excerpt

    Er ESB Sovétríkin endurfædd? Eða “Fjórða ríkið”? Eiríkur og Hulda rekja hvernig þunglamalegt evrópskt skrifræði verður að uppsprettu lygilegustu hrollvekja, allt frá meintu sæti Andkrists á Evrópuþinginu til áforma Davos-elítunnar um mannfjöldaskipti. Loks er rýnt í hvernig þessar alþjóðlegu flökkusögur fá staðbundinn blæ á Íslandi, þar sem sambandið er teiknað upp sem myrkt skuggavald sem hyggst stela fiskinum, ræna orkunni og skikka ungmenni önnur en íslensku elítunnar í herinn. Skuggavaldið e

  4. Episode · Aug 3, 2026

    #47 - Hvað er eiginlega í gangi á Svalbarða? (opens the original)

    Episode notes

    Read excerpt

    Var dómsdagshvelfingin á Svalbarða reist svo heimselítan gæti náð stjórn á matvælaframleiðslu heimsins? Hulda og Eiríkur rýna inn í frosna fjallshlíð þar sem fræ frá um hundrað löndum eru geymd. En á þessum sama ísilagða eyjaklasa kraumar líka annað og raunverulegra njósnastríð, þar sem rússneskir togarar sigla yfir sæstrengi sem rofna á dularfullan hátt. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmynd

  5. Episode · Jul 20, 2026

    #46 - Stóra Tartaría - heimsveldið sem hvarf í leðjuflóði (opens the original)

    Episode notes

    Read excerpt

    Drukknaði eitt stærsta heimsveldi mannkynssögunnar í leðju og var kjölfarið þurrkað út úr öllum sögubókum? Hulda og Eiríkur ræða söguna um Stóru Tartaríu, eina furðulegustu og áhrifamestu samsæriskenningu alnetsins. Við rekjum slóðina frá hugmyndum virtasta stærðfræðings Rússlands í Moskvu, yfir í gamlan landafræðilegan misskilning Evrópumanna, og alla leið til 580 þúsund manna Facebook-hóps þar sem menn leita að týndum jarðhæðum stórborga. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veið

Publishing over time

Last 90 days. Choose a month to open its work.

Recurring subjects

Named in the text we hold. One piece can cover several.

Audience

No verified audience measurement yet.

About this data

Counts cover the work we have indexed. Tone needs enough text and a confident classification. Excerpts and episode notes are not full articles or transcripts.

Identity or attribution wrong? Suggest a correction.

See coverage about Skuggavaldið