Seinni níu
Hlaðvarp um golf þar sem rætt er við skemmtilega kylfinga. Í þættinum er einblínt á léttleika.Þáttastjórnendur eru Logi Bergmann & Jón Júlíus Karlsson
- Indexed episodes, last 90 days
- 12
- Latest publication
- Sep 20, 2026
- Audience
- Checking…
- Earliest in this view
- Jul 6, 2026
Latest episodes
#130 - Logi varð Íslandsmeistari sex árum eftir að hann hóf að æfa golf (opens the original)
Read excerpt
Það var létt yfir okkur í vikunni þegar Logi Sigurðsson, kylfingur úr Golfklúbbi Suðurnesja og Íslandsmeistari í golfi 2023, kom í heimsókn til okkar í Seinni níu. Logi er, líkt og nafni hans, alltaf léttur. Logi sagði okkur aðeins frá ferlinum sínum og það kom okkur ansi mikið á óvart að heyra að hann hafi orðið Íslandsmeistari aðeins sex árum eftir að hann hóf formlega að æfa golf. Það gerði hann ekki fyrr en 17 ára gamall og má með sanni segja að uppgangur hans í íþróttinni hafi verið með ólí
#129 - Haukur Dór lætur MS ekki aftra sér frá golfiðkun (opens the original)
Read excerpt
Við fengum til okkar frábæran gest þessa vikuna í Seinni níu. Haukur Dór Kjartansson, félagi í Golfklúbbnum Hamri á Dalvík, settist niður með okkur og sagði frá því hvernig það er að leika golf samhliða því að vera með MS-sjúkdóminn. Haukur Dór vekur gjarnan athygli fyrir gott viðmót, jákvæðni og brosmildi, en þessir eiginleikar hafa hjálpað honum að takast á við ýmsar hindranir í lífinu, þar á meðal þennan erfiða sjúkdóm sem hann greindist með árið 2003. Haukur lætur MS-sjúkdóminn ekki stoppa s
#128 - Aron Jóhannsson lék Korpuna á sjö undir pari (opens the original)
Read excerpt
Við fengum knattspyrnumanninn Aron Jóhannsson í stórskemmtilegt spjall. Hann stundar golfíþróttina af miklu kappi og lék á dögunum Korpúlfsstaðavöll á 7 höggum undir pari. Ótrúleg spilamennska. Frábær þáttur en þar kemur meðal annars í ljós að Aron er alltaf hræddur þegar stigið er inn á flatirnar.
#127 - Jón Guðni fór einn holu í höggi (opens the original)
Read excerpt
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, kom í skemmtilegt spjall til okkar í Seinni níu. Jón Guðni er fínn kylfingur með um 16 í forgjöf. Hann er félagi í Golfklúbbnum Oddi og nokkuð duglegur að spila. Í þættinum segir Jón okkur frá því þegar hann fór holu í höggi með þriðja höggi sínu af teig og var í þokkabót einn þegar atvikið átti sér stað. Einnig segir Jón okkur frá því þegar hann varð fyrir því óláni að slá bolta sínum í kálfa kylfings sem var í ráshópnum fyrir framan hann. Það getur
#126 - Viggó er með 11-tré í pokanum til að stöðva forgjafarhækkun (opens the original)
Read excerpt
Við fengum hinn stórskemmtilega Viggó Harald Viggósson til okkar í Seinni níu. Viggó er góður kylfingur en ekki síst hefur hann verið frumkvöðull á sviði golfherma á Íslandi. Í þættinum ræðum við þá þróun sem hefur átt sér stað á því sviði. Viggó segir okkur frá því hvernig hann fór af stað með opnun golfhermastaðar og þeim mistökum sem hann gerði í upphafi. Viggó er kominn með 11-tré í golfpokann sem hann notar til að sporna gegn þeirri forgjafarhækkun sem fylgir því að aldurinn færist yfir. Þe
Publishing over time
Last 90 days. Choose a month to open its work.
Recurring subjects
Named in the text we hold. One piece can cover several.
Audience
No verified audience measurement yet.
About this data
Counts cover the work we have indexed. Tone needs enough text and a confident classification. Excerpts and episode notes are not full articles or transcripts.
Identity or attribution wrong? Suggest a correction.