Skip to content
HeyJared

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

Gestur úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir

Podcast · By RÚV · Icelandic · Official site

Indexed episodes, last 90 days
11
Latest publication
Aug 6, 2026
Audience
Checking…
Earliest in this view
Jul 20, 2026
The latest indexed work is over 30 days old. There may be a gap in what we hold.

Latest episodes

  1. Episode · Aug 6, 2026

    Ívar Örn Hansen - helvítis kokkurinn (opens the original)

    Episode notes

    Read excerpt

    Ívar Örn Hansen betur þekktur sem Helvítis kokkurinn er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í dag. Ívar var ungur þegar hann fékk áhuga á matargerð. Hann var varaður við af læknum að hann myndi fá hjartaáfall ef hann tæki sig ekki á og það reyndist rétt. Fyrir nokkrum árum tók hann ákvörðun um að láta á það reyna að vinna fyrir sjálfan sig og er í dag einkakokkur fyrir ríka ferðamenn meðal annars. Hann framleiðir líka sultur undir nafninu Helvítis. Við kynnumst Ívari betur í þætti dagsins.

  2. Episode · Aug 5, 2026

    Berglind Viggósdóttir (opens the original)

    Episode notes

    Read excerpt

    Berglind Viggósdóttir er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í dag. Hún hefur misst tvo syni og hefur heitið því að berjast fyrir bættum úrræðum innan kerfisins fyrir börn sem passa ekki inn í hið hefðbundna kerfi. Eftir að hafa barist í hljóði fyrir sonum sínum allt frá unga aldri ákvað hún að skila skömminni og gera sitt til að bæta kerfið í minningu þeirra.

  3. Episode · Aug 4, 2026

    Silja Sóley Birgisdóttir (opens the original)

    Episode notes

    Read excerpt

    Silja Sóley Birgisdóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í dag. Hún segist hafa komið sjálfri sér á óvart í baráttunni enda séu aðeins örfá ár síðan að hún var svo feimin og kvíðin að koma fram að hún fékk að flytja kynningar fyrir kennara sína í einrúmi. Við heyrum sögu Silju Sóleyjar í þætti dagsins.

  4. Episode · Jul 30, 2026

    Snorri Helgason (opens the original)

    Episode notes

    Read excerpt

    Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason hefur verið heillaður af tónlist frá barnsaldri. Hann les allt sem hann kemst yfir um tónlist, meira segja ævisögur tónlistarmanna sem hann er ekki sérlega hrifinn af. Snorri missti föður sinn sama dag og útgáfutónleikar hans fóru fram og hann segir ekkert annað hafa komið til greina en að halda tónleikana og um leið minnast föður síns, tónlistarmannsins Helga Péturssonar.

  5. Episode · Jul 29, 2026

    Þórir Kjartansson (opens the original)

    Episode notes

    Read excerpt

    Þórir Kjartansson bílstjóri og öryggisvörður borgarstjóra er gestur Viktoríu Hermannsdóttur í Segðu mér í dag. Saga Þóris er sannkölluð kraftaverkasaga en hann fór frá því að vera heimilislaus og sofa stundum í bílakjallara ráðhússins yfir í að vera bílstjóri borgarstjóra. Hann segir okkur ótrúlega sögu sína í dag- frá ofbeldi, neyslu og skömm yfir í að öðlast frelsi, fallegt líf og að vera treyst fyrir mikilli ábyrgð í störfum sínum. Við kynnumst Þóri í þætti dagsins.

Publishing over time

Last 90 days. Choose a month to open its work.

Recurring subjects

Named in the text we hold. One piece can cover several.

Audience

No verified audience measurement yet.

About this data

Counts cover the work we have indexed. Tone needs enough text and a confident classification. Excerpts and episode notes are not full articles or transcripts.

Identity or attribution wrong? Suggest a correction.

See coverage about Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur