Skip to content
HeyJared

Orð af orði

Þáttur um íslensku og önnur mál.Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir

Podcast · By RÚV · Icelandic · Official site

Indexed episodes, last 90 days
8
Latest publication
Aug 23, 2026
Audience
Checking…
Earliest in this view
Jul 5, 2026
The latest indexed work is over 30 days old. There may be a gap in what we hold.

Latest episodes

  1. Episode · Aug 23, 2026

    Ristabrauð úr ristavél (opens the original)

    Episode notes · Critical tone

    Read excerpt

    Orðið ristabrauð finnst ekki í orðabókum og í rituðu máli er mun algengara að talað sé um ristað brauð. Það þarf þó ekki að þýða að ristabrauð sé ekki til. Mörg orð eru til þótt þau finnist ekki í orðabókum. Það sama á við um ristavél, sem þykir ófínna en samheitið brauðrist. Ristavél er ekki í Íslenskri orðabók og í Íslenskri nútímamálsorðabók er það skýrt með orðinu brauðrist og sagt vera barnamál. Þó er ljóst að fjöldinn allur af fullorðnu fólki notar það.

  2. Episode · Aug 16, 2026

    Upphaf útvarps (opens the original)

    Episode notes

    Read excerpt

    Það var stórhuga og bjartsýn þjóð sem byggði landið þegar Ríkisútvarpið var stofnað 1930; og tungan var sameiningartákn. Guðrún og Anna gramsa í kistu Ríkisútvarpsins, rifja upp Daglegt mál í umsjón Eiríks Hreins Finnbogasonar og blaða í Útvarpstíðindum.

  3. Episode · Aug 9, 2026

    Um sólmyrkva og fleiri 19. aldar nýyrði (opens the original)

    Episode notes

    Read excerpt

    „Jeg kalla það ekki formyrkvan, því það er ljótt orð,“ sagði Jónas Hallgrímsson um það þegar tungl myrkvar sólu og gaf því heitið sólmyrkvi. Þegar Jónas þýddi bók um stjörnufræði úr dönsku bjó hann til fjölmörg íslensk orð yfir hugtök í stjörnufræði, eðlsifræði og stærðfræði. Mörg þeirra eru enn notuð sem íðorð og sum urðu hluti af daglegum orðaforða og lifa enn góðu lífi tæpum 200 árum síðar.

  4. Episode · Aug 2, 2026

    Margvíslegar merkingar orðsins mót (opens the original)

    Episode notes

    Read excerpt

    Sumarið er tími hvers kyns móta. Haldin eru íþróttamót, skátamót, héraðsmót og þannig mætti lengi teljs. Orðið mót getur verið af ýmsum orðflokkum og haft mismunandi merkingarlegt hlutverk innan hvers þeirra. Það kemur á óvart að orð sem lætur svona lítið yfir sér skuli vera svona fjölhæft.

  5. Episode · Jul 26, 2026

    Tíska (opens the original)

    Episode notes · Neutral tone

    Read excerpt

    Tíska er hverfult fyrirbæri, hún kemur og fer og breytist minnst ársfjórðungslega, jafnvel oftar. Það mætti auðveldlega halda því fram að tíska sé tiltölulega nýlegt fyrirbæri á Íslandi, hafi jafnvel ekki komið til sögunnar fyrr en kannski um miðja 20. öld. En svo einfalt er það víst ekki. Í þessum þætti verður spáð í tískuna – orðið, það er að segja – aldur þess og merkingu, hlutverk, samheiti og samsetningar sem byrja og enda á tísku.

Publishing over time

Last 90 days. Choose a month to open its work.

Recurring subjects

Named in the text we hold. One piece can cover several.

Audience

No verified audience measurement yet.

About this data

Counts cover the work we have indexed. Tone needs enough text and a confident classification. Excerpts and episode notes are not full articles or transcripts.

Identity or attribution wrong? Suggest a correction.

See coverage about Orð af orði