Lífið á meðan
Lífið á meðan er hlaðvarp um aðstandendur krabbameinssjúklinga. Í þáttunum ræði ég við aðstandendur og fólk sem situr með þeim á einn eða annan hátt um lífið sem heldur áfram á meðan allt er í gangi. Samtöl um reynslu sem margir þekkja en fá sjaldan tækifæri til að tala um.
- Indexed episodes, last 90 days
- 3
- Latest publication
- Aug 18, 2026
- Audience
- Checking…
- Earliest in this view
- Jul 8, 2026
Latest episodes
12. Stefán Karl (opens the original)
Read excerpt
Í þessum þætti sest Stefán Karl hjá mér. Við tölum um að vera aðstandandi, biðina eftir svörum, að læra að treysta ferlinu og hvað það getur verið erfitt að viðurkenna að maður ráði ekki alltaf við allt. Stefán talar opinskátt um veikindaleyfi, vinnuna, vinina sem urðu klettarnir hans og af hverju honum finnst mikilvægt að fara ekki í felur með það sem er í gangi. Við förum líka mikið inn á stráka hliðina, hvernig þeir tala saman, styðja hvorn annan og hvernig nærvera getur stundum skipt meira m
11. Lóa Björk (opens the original)
Read excerpt
Þessi þáttur er aðeins öðruvísi en þeir sem hafa komið á undan.Að þessu sinni fæ ég til mín Lóu Björk Ólafsdóttur, ráðgjafa hjá Krabbameinsfélaginu, í eitt mjög mikilvægt samtal.Ég er kannski ekki alveg hlutlaus þegar kemur að Lóu. Hún hefur hjálpað okkur hjónum mikið og var hluti af Heruteyminu sem reyndist okkur ómetanlegur stuðningur á erfiðum tíma. Fyrir það verð ég henni og Heruteyminu ævinlega þakklát.Við tölum um það sem gerist þegar lífið verður skyndilega allt annað en þú hafðir planað.
10. Helga og Björn (opens the original)
Read excerpt
Það eru sum samtöl sem breyta engu um það sem hefur gerst en geta breytt miklu fyrir þann sem situr í svipuðum sporum í dag. Í þessum þætti opna Helga og Björn hjörtu sín og segja af ótrúlegri hreinskilni frá því sem enginn undirbýr foreldra fyrir. Óttanum, óvissunni, geðshræringunni og því hvernig heimurinn getur hrunið á einu augnabliki þegar barnið þitt greinist með krabbamein. En það sem þau gefa í þessum þætti er meira en saga fjölskyldunnar sinnar. Þau gefa öðrum foreldrum orð yfir tilfinn
Publishing over time
Last 90 days. Choose a month to open its work.
Recurring subjects
Named in the text we hold. One piece can cover several.
Audience
No verified audience measurement yet.
About this data
Counts cover the work we have indexed. Tone needs enough text and a confident classification. Excerpts and episode notes are not full articles or transcripts.
Identity or attribution wrong? Suggest a correction.