Skip to content
HeyJared

Fram og til baka

Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna.

Podcast · By RÚV · Icelandic · Official site

Indexed episodes, last 90 days
13
Latest publication
Sep 26, 2026
Audience
Checking…
Earliest in this view
Jul 4, 2026

Latest episodes

  1. Episode · Sep 26, 2026

    Adda Baldurs knattspyrnuhetja (opens the original)

    Episode notes

    Read excerpt

    Fimma dagsins er frá Öddu Baldursdóttur knattspyrnukonu og sérfræðingi sem segir okkur af fimm leikjum sem breyttu lífinu. Og þeir leikir eru sannarlega af ýmsum toga, allt frá erfiðu tapi yfir í leiki sem færðu liðinu Íslandsmeistaratitil. Svo tölum við líka um allt hitt, fjölskyldulífið og fötluð börn. Í síðari hluta þáttarins skoðaði umsjónarmaður það sem gerðist á deginum

  2. Episode · Sep 19, 2026

    Gunnar Tómas Kristófersson kvikmyndafræðingur (opens the original)

    Episode notes

    Read excerpt

    Þættirnir um Perlur úr Kvikmyndasafni Íslands vöktu mikla athygli en þar sat Egill Helgason ásamt ungum kvikmyndafræðingi, Gunnari Tómasi Kristóferssyni, og rýndi í perlur úr hinu merkilega safni. Gunnar Tómas var gestur Felix í Fimmunni að þessu sinni og talaði auðvitað um fimm kvikmyndir en spjallið fór um víðan völl að vanda.

  3. Episode · Sep 12, 2026

    Snjólaug Lúðvíksdóttir um bestu og verstu uppistöndin (opens the original)

    Episode notes

    Read excerpt

    Uppistandarinn Snjólaug Lúðvíksdóttir hefur vakið athygli fyrir skemmtilegar pælingar um lífið og tilveruna og hún var gestur Felix í Fimmunni. Hún talaði um fimm uppistönd sem breyttu lífinu og þar kenndi sannarlega margra grasa, allt frá fyrsta uppistandinu í London sem reyndist mikið frægðarför yfir í versta uppistand allra tíma í matsalnum í Borgarholtsskóla. Í síðari hlutanum fjallaði Felix um það sem gerðist á deginum

  4. Episode · Sep 5, 2026

    Bergur Ebbi og öld ímyndunaraflsins (opens the original)

    Episode notes

    Read excerpt

    Bergur Ebbi Benediktsson hefur sent frá sér nýja bók um Öld ímyndunaraflsins og hann kom í Fimmu hjá Felix og ræddi fimm tölvur sem höfðu áhrif á líf hans og fjölskyldunnar. Spjallið fór eins og vera ber um víðan völl og við sögu komu ýmis ævintýri á magnaðri ævi. Í síðari hlutanum minntist umsjónarmaður látinna snillinga, Dolly Parton, Tim Curry og Freddy Mercury en hann hefði orðið áttræður í dag. Að auki koma Harpa Þorvaldsdóttir úr hljómsveitinni Brek í spjall með nýtt lag undir hendinni

  5. Episode · Aug 29, 2026

    10 ára afmæli Improv Ísland og glænýi dúettinn HAUSST (opens the original)

    Episode notes

    Read excerpt

    Þennan laugardaginn í Fram og til baka fengu þau Felix og Nanna til sín þá Snorra Þór Stefánsson og Hauk Örn Brink sem saman skipa dúettinn HAUSST, en þeir gáfu út sitt fyrsta lag nú á dögunum. Við ræddum við þá um tilkomu samstarfsins og það sem er framundan hjá þeim félögum. Þá fengu umsjónarmenn þáttarins líka góða heimsókn frá þeim Söru Rut Arnardóttur og Stefáni Gunnlaugi Jónssyni frá Improv Ísland. Þau fóru í saumana á því hvað spuni er og kynntu okkur fyrir dagskrá haustins hjá grínhópnum

Publishing over time

Last 90 days. Choose a month to open its work.

Recurring subjects

Named in the text we hold. One piece can cover several.

Not enough subject data for this period yet.

Audience

No verified audience measurement yet.

About this data

Counts cover the work we have indexed. Tone needs enough text and a confident classification. Excerpts and episode notes are not full articles or transcripts.

Identity or attribution wrong? Suggest a correction.

See coverage about Fram og til baka